Kennarar og starfsfólk starfsbrautar Flensborgarskóla heimsótti nýlega sérnámsbrautina í Fjölbrautaskólanum á Selfossi. Þau fengu góðar móttökur og deildarstjóri brautarinnar sagði frá starfseminni og uppbyggingu námsbrautarinnar.
Það er alltaf gott og gagnlegt að sjá hvað aðrir skólar eru að gera, fá hugmyndir og ræða málin. Það var svo sannarlega raunin í þessari heimsókn.
Kærar þakkir fyrir góðar móttökur!