- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
Starfsþróunardagur framhaldsskólanna var haldinn síðastliðinn föstudag. Þá hittist allt starfsfólk skólanna, greina- og deildaskipt, hlýddi á fagleg erindi og lærði hvert af öðru. Félagsgreinakennarar allra skólanna hittust í Flensborgarskólanum og áttu saman góðan dag. Dagurinn tókst í heild sinni afar vel og starfsfólkið var ánægt með að fá rými til þess að bera saman bækur við kollega sína úr öðrum skólum.

