Starfsþróunarferð

Nemendur fá gott frí í þessari viku til að hlaða batteríin fyrir lokasprett annarinnar. Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudag sem er hefðbundinn frídagur en við bætast miðvikudagur og föstudagur vegna starfsþróunarferðar starfsfólks til Hollands.  Þar er ætlunin að hitta nemendur og starfsfólk íþróttaafreksskóla, bæði í Eindhoven og Arnhem, og bera saman bækur.

Við vonum að dagarnir nýtist nemendum vel, hvort sem er til afslöppunar eða uppsóps á verkefnavinnu.