Nýverið fór stór hluti starfsfólks skólans til Hollands að kynna sér aðstæður íþróttaafreksnemenda þar í landi, hitta þjálfara og nemendur, og fræðast um hvernig Hollendingar samtvinna nám og afreksíþróttir. Flensborgarskólinn tilheyrir ENOSS samtökum afreksíþróttaskóla í Evrópu sem gaf okkur færi á að heimsækja höfuðstöðvar alls íþróttastarfs í Hollandi, Papendal. Þar hittum við fjölmarga þjálfara og nemendur og þar á meðal nemanda okkar, Ragnheiði Þórunni, sem leikur með PEC Zwolle og stundar nám samhliða við Flensborgarskólann. Ragnheiður hélt fyrir okkur frábæra kynningu þar sem hún sagði frá lífinu í Hollandi, fótboltanum og hvernig dagarnir almennt ganga fyrir sig hjá henni. Við heimsóttum einnig PSV Eindhoven og skoðuðum æfingasvæðið þeirra, ræddum við þjálfara kvennaliðsins og fræddumst um hvernig leikmenn stunda sitt nám þrátt fyrir stífar æfingar og leiki.
Ferðin gekk stórvel, var afar áhugaverð og gaf skemmtilegan samanburð á því hvernig Hollendingar og við hér á Íslandi styðjum við afreksíþróttafólk í námi. Þessi ferð verður lengi í minnum höfð og alveg örugglega skólastarfinu til framdráttar.