Steiney Lilja syngur í Söngkeppni framhaldsskólanna

Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram í Háskólabíói laugardagskvöldið 11. apríl. Steiney Lilja Einarsdóttir keppir fyrir hönd skólans og syngur lagið Vetrarsól. Lagið er eftir Gunnar Þórðarson en hinn eini sanni Björgvin Halldórsson gerði lagið eftirminnilegt. Björgvin var gamall Flensborgari og sýndi skólanum ávallt vinar- og hlýhug.

Við sendum Steiney Lilju hlýja strauma og minnum á símakosninguna sem er öllum opin. Steiney er með númerið 900-9115 í keppninni.