Viðar Ágústsson, fyrrum stjörnu- og eðlisfræðikennari við skólann, bauð uppá heimsókn í stjörnuskoðunartjald í liðinni viku. Hópur nemenda á starfsbraut þáði boðið og kíkti í tjaldið ásamt nemendum Ásdísar Auðunsdóttur í stjörnufræði á þessari önn. Nemendum fannst gaman að upplifa himingeiminn og fá fræðslu um leið. ,,Þetta var eins og að fara í bíó", sagði einn nemandinn við tækifærið og nemendum fannst kennslustundin líða hratt enda mikil gleði og almenn ánægja með tækifærið.

