Stöðupróf í dönsku, spænsku og þýsku

Myndin er útbúin með aðstoð gervigreindar
Myndin er útbúin með aðstoð gervigreindar
Stöðupróf í dönsku, spænsku og þýsku verða haldin í Flensborgarskólanum, fimmtudaginn 17. september 2026 frá kl. 12.00 - 14.00 í ritveri skólans.
 
Stöðuprófin eru fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita viðkomandi tungumál.
 
Prófin eru aðeins opin fyrir innritaða nemendur Flensborgarskólans.
Skráning fer fram hér: Skráning í stöðupróf - FLB 2026 og er síðasti skráningardagur þriðjudagurinn 15. september. Prófgjald er 25.000 kr. og gengið er frá greiðslu á skrifstofu skólans. Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.
 
Allar nánari upplýsingar veitir áfangastjóri skólans.