Samtal um framtíðina - þakkarbréf frá forseta Íslands

Skólanum barst á dögunum þakkarbréf frá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, vegna þátttöku skólans í verkefninu Samtal um framtíðina, sem fór fram þann 10. október síðastliðinn. Forsetinn vonast til þess að með samtalinu hafi skapast rými fyrir samtal, samvinnu og hlustun á milli kynslóða og hún ber vonir um áframhaldandi virka þátttöku ungs fólks.

Forseti Íslands bað fyrir kærar kveðjur með þessum orðum: ,,ég bið ykkur að koma hjartans þökkum mínum áfram til nemenda, kennara og allra þeirra sem lögðu verkefninu lið".

Skólinn þakkar svo kærlega fyrir samstarfið og telur samtalið hafa verið til góðs fyrir nemendur og starfsfólk skólans.