Til hamingju nýstúdentar!

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í dag 107 nemendur. Þau útskrifuðust af fimm brautum skólans; 16 af félagsvísindabraut, 10 af raunvísindabraut, 4 af starfsbraut, 11 af viðskipta- og hagfræðibraut og 66 af opinni braut. Ríflega helmingur þeirra lauk einnig námi af einu af sviðum skólans, þ.e. af félagslífssviði, listasviði, tæknisviði eða íþróttaafrekssviði skólans.

Hæstu einkunn hlaut Bergur Fáfnir Bjarnason með 9,74 en hann hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi. Bergur Fáfnir hlaut einnig styrk frá Rio Tinto fyrir góðan árangur í raungreinum, verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku, íslensku, íþróttaafreksgreinum og stærðfræði en Bergur Fáfnir hefur haldið úti jafningjakennslu í stærðfræði og raungreinum innan skólans sem hefur reynst afar gott úrræði í námi. Bergur Fáfnir hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar og þá hlaut hann einnig viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands sem veitt eru nemendum sem sýna afburða árangur í efnafræði en Bergur Fáfnir sigraði árlega landskeppni í efnafræði meðal framhaldsskólanema fyrr á árinu. Bergur Fáfnir er afreksmaður í sundi og er þessa stundina í Andorra að keppa á Smáþjóðaleikum fyrir Íslands hönd.

Hekla Sif Óðinsdóttir er semidúx Flensborgarskólans með einkunnina 9,62. Hekla Sif hlaut Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Hún fékk einnig verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku og spænsku. Þá hlaut hún viðurkenningu frá Stærðfræðafélagi Íslands fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði.

Þá voru þrír nýnemar, Hrönn Haraldsdóttir, Húnbogi Bjartur Helgason og Halldór Ingi Hafþórsson, verðlaunuð fyrir góðan námsárangur á fyrsta námsári.

Tveir starfsmenn voru kvaddir eftir farsælan feril en það voru þær Sigrún Karlsdóttir, fulltrúi á skrifstofu skólans og Bergljót Gunnlaugsdóttir, forstöðumaður bókasafns.

Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari, og Júlía Jörgensen, aðstoðarskólameistari, fluttu ávörp og fóru yfir liðið skólaár, þ.m.t. skólastarfið sem einkenndist af gjöfulum verkefnum og frumkvæði nemenda. Þar vakti athygli nýr Flensborgarlundur í landi skógræktar Hafnarfjarðar og jafningjaver sem starfrækt er af nemendum til stuðnings við samnemendur sína í stærðfræði og raungreinum.

Þá sungu Flensborgararnir Áróra Eyberg Valdimarsdóttir, Hrafnhildur Jara Ingvarsdóttir og Kristján Rafn Oddsson lög við athöfnina og Kári Þormar lék undir. Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta og minntist áranna í Flensborg með hlýju. Hún þakkaði samnemendum og starfsfólki skólans fyrir að gera skólann að lifandi og skemmtilegu umhverfi sem hún segir að geri Flensborg að svo einstökum skóla. Þá afhenti hún skólanum gjöf en hópurinn gaf fjárupphæð til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna í nafni skólans. Tryggvi Harðarson ávarpaði athöfnina fyrir hönd 50 ára stúdenta en hann fór fyrir hópi þeirra sem luku fyrstir stúdentspróf frá Flensborgarskólanum árið 1975.