- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
Miðvikudaginn 25. febrúar hittu fulltrúar umhverfisnefndar FLB, þau Fabian, Lovísa og Rakel, fulltrúa úr nefndum Kvennó og Versló. Markmið fundarins var að styrkja tengsl og búa til samstarf. Þemu til umfjöllunar hjá Kvennó og Versló snúa að samgöngum en hringrásarhagkerfi hjá Flensborgurum, samt er grunnur til samstarfs. Í undirbúningi er að vera með umhverfisdag, vitundarvakningu um grænþvott og hringrásarhagkerfið. Aldrei er að vita nema að samstarf verði líka um þátttöku í ungu umhverfisfréttafólki. Í næstu viku ætla svo fulltrúar okkar í heimsókn í Kvennaskólann.