Upphaf skólaársins - kennsla hefst fimmtudaginn 20. ágúst, stundatöflur tilbúnar á mánudaginn, töflubreytingar og fleira

Kæri nemandi!

Við höfum hafið undirbúning fyrir komandi skólaár. Meðal annars er verið að búa til stundatöflur fyrir haustönnina og á meðan þeirri vinnu stendur er lokað fyrir INNU. Við stefnum á að opna fyrir stundatöfluna mánudaginn 17. ágúst en kennsla hefst fimmtudaginn 20. ágúst, strax að lokinni skólasetningu kl. 08:30.

Um leið og opnað verður fyrir INNU þá sérðu m.a. bókalista (einnig hægt að skoða á heimasíðu, sjá hér) en mikilvægt er að nemendur komi með námsgögn strax því kennsla hefst af fullum krafti strax á fyrsta degi. Einnig er mikilvægt að nemendur hafi aðgang að fartölvu eða öðrum tölvubúnaði og við minnum á að nemendur geta hlaðið niður Office pakkanum frítt í gegnum vefsíðu skólans. Hægt verður að leigja skápa í anddyri skólans með því að senda tölvupóst á skrifstofa@flensborg.is. Einnig að kaupa 10 og 20 skipta matarkort í heitan mat í mötuneytinu, 10 skipti á kr. 12.500, 20 skipti á kr. 24.600.

Töflubreytingar fara fram dagana 20.-21. ágúst og fara þær fram rafrænt í gegnum INNU. Einnig geta nemendur fengið aðstoð við að laga töfluna í stofu M207 fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 15:00 – 17:00. Útskriftarefni annarinnar mæta þó fyrr í töflubreytingar og yfirferð námsferla, eða í stofu M307 frá kl. 13:00 – 15:00. Áfangastjóri skólans mun minna á þetta en finna má leiðbeiningar varðandi töflubreytingar á vefsíðu skólans þegar nær dregur.

Að lokum

Eins og sjá má hér að ofan þá er ýmislegt framundan í næstu viku og því er mikilvægt að fylgjast vel með tölvupósti þínum og fréttum á vefsíðu skólans og samfélagsmiðlum. Einnig að fylgjast vel með á INNU því þar koma allar helstu upplýsingar fram um námið, heimavinnu og fleira. Einnig bið ég þig um að kynna þér líka helstu reglar skólans, m.a. almennar skólareglur og reglur um mætingu.

Ég hlakka til að sjá þig!

Bestu kveðjur,

Erla Sigríður Ragnarsdóttir,

skólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði