Umhverfisnefnd skólans fékk þá hugmynd fyrir rúmu ári síðan að koma skólanum í samstarf við skógrækt Hafnarfjarðar. Markmið samstarfins var að fá lund til afnota í þeim tilgangi að útskriftarnemar og aðrir Flenborgarar gætu komið saman við ýmis tilefni í framtíðinni og gróðursett tré. Á þessari önn hefur tvívegis verið gróðursett, snemma í haust og svo aftur núna í vikunni. Einnig var sett niður skilti í lundinn sem á stendur Flensborgarlundur sem gerir Flensborgurum auðveldara fyrir að finna hann.
Útskriftarefni vorannar settu niður birkiplöntur með aðstoð Fabian, fulltrúa umhverfisnefndar skólans, og Ásrúnar Óladóttur, umhverfisfræðikennara sem heldur utan um nefndina. Eftirfarandi myndir voru teknar við það tilefni.






