Veðurviðvörun 26. mars 2026 - óvissa um skólahald

Veðurstofa hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir morgundaginn, a.m.k. fram til hádegis. Vel verður fylgst með spám og formleg tilkynning um skólahald gefin út hið fyrsta ef veðurspár rætast. Þessar upplýsingar verða sendar í tölvupósti til nemenda og birtar á heimasíðu skólans/samfélagsmiðlum.

Ef ekkert verður að veðri verður skólahald óbreytt.