Vel heppnaður foreldrafundur nýnema

Á þriðjudaginn fór fram afar vel heppnaður foreldrafundur nýnema hér í Flensborgarskólanum. Fundurinn var vel sóttur af foreldrum nýnemahópsins, en þar fór fram kynning á öllu því helsta sem viðkemur námi nýnema hér við Flensborgarskólann. Stjórnendur skólans fóru yfir allt það helsta, frá skólareglum og yfir námsfyrirkomulag. Fulltrúar NFF tóku snúning á félagslífi nemenda og þá voru fulltrúar nemendaþjónustu skólans og umsjónarkennarar Hámarksins kynntir til leiks.

Eftir fund gafst foreldrum færi á að ræða við stjórnendur og kennara sem gaf afar góða raun.