Vel heppnaður nýnemadagur

Yfir 200 hundruð nýnemar tóku sprettinn út úr húsi í blíðviðrinu í gær. Nemendafélag skólans grillaði pulsur og skipulagði ratleik fyrir nýnemana þar sem hvert einasta stig skipti máli. Stemningin var góð og sjá mátti nemendur á hlaupum víða um bæinn. Gleðin hélt áfram um kvöldið þar sem nemendafélagið kynnti nefndir og var með fjölbreytta dagskrá.

Enn og aftur, velkomnir allir nýnemar í Flensborg!