Vörumessa frumkvöðlafræðinemenda

Vörumessa Ungra frumkvöðla fór fram á föstudaginn og laugardag í Smáralind en þar kynntu 650 framhaldsskólanemar þau fyrirtæki sem þeir hafa stofnað í frumkvöðlaáföngum í framhaldsskólum landsins á önninni. Flensborgarskólinn átti þar tvo nemendahópa sem kynntu annars vegar stuttermaboli úr frumlegu og léttu efni og svo hóp sem gaf út blað/vefsíðu sem fjallar um frumkvöðla, fyrirtæki og tekjur. 

Nemendur okkar stóðu sig afar vel. Kötlu bolirnir voru áberandi og seldust vel og blaðið kom sér afar vel fyrir gesti og gangandi.