Fréttir úr skólastarfi - árshátíðarvika framundan, opið hús og fleira

Hér má sjá nýjustu Flensborgarfréttir með helstu upplýsingum um dagana framundan, þ.e. söngkeppni framhaldsskólanna, leiksýningu nemenda í Bæjarbíói á sunnudagskvöldið, árshátíðarviku NFF með umhverfis- og jafnréttsdagskrá. Fjöldi nemenda, á einn eða annan hátt, kemur að þessari dagskrá nemenda; Steiney Lilja syngur fyrir hönd skólans í söngkeppninni, sjá frétt hér, Emilía Ósk Grétarsdóttir, formaður leikfélagsins, hefur haldið utan um umgjörðina í leiklistinni í vetur og þar er afar efnilegur nemendahópur að spreyta sig á sprenghlægilegu gamanleikriti Fullkomið brúðkaup undir stjórn Gunnars Björns Guðmundssonar, allar upplýsingar um sýninguna á tix.is og á samfélagsmiðlum skólans. Stjórn NFF, undir stjórn Kristófers Kára Ólafssonar oddvita, hefur leitt allan undirbúning vegna árshátíðarvikunnar og þá hefur jafnréttis- og umhverfisnefnd einnig skipulagt dagskrá fyrir nemendur.

Kynnið ykkur endilega þessa viðburðarríku daga í Flensborgarfréttum. Hér skiptir svo sannarlega máli að við tökum þátt og höfum það gaman. Þannig eflist skólastarfið almennt og þannig fá nemendur skólans tækifæri til að vaxa og dafna á sínum forsendum.