Meðfylgjandi er fréttabréf Flensborgarskólans um það helsta sem framundan er í skólastarfinu, endilega kynnið ykkur það vel. Einnig þau úrræði sem skólinn hefur upp á að bjóða varðandi stuðning í námi en allar helstu upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðu skólans.
Þá er fyrirhugaður fundur með nemendum skólans, einhvers konar Spurt og svarað á fimmtudaginn á sal þar sem skólameistari og oddviti NFF sitja fyrir svörum varðandi ýmislegt í skólastarfinu. Meðal þess sem lögð verður áhersla á er bætt umgengni, skólareglur almennt og þá sérstaklega notkun síma í kennslustundum (skólinn hefur lagt mikla áherslu á að nemendur setji símana í hvíld meðan á kennslunni stendur), námið, virka þátttöku nemenda í félagslífinu og fleira.
Við minnum svo á haustfrí dagana 26. – 27. október og námsmatsdag á föstudaginn í þessari viku, föstudaginn 23. október.
Gangi ykkur vel og hafið það sem allra best!